Samningar flug­manna og flug­freyja Icelandair að losna

Samningar flug­manna og flug­freyja Icelandair að losna

Samningar við flugmenn og flugfreyjur renna út eftir tæpa viku eða 30. september og samningar við flugvirkja losna 31. desember næstkomandi.

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Í september 2020 lauk Icelandair ríflega 30 milljarða króna almennu hlutafjárútboði, þar sem þátttakendur eignuðust samtals yfir 80% hlut í flugfélaginu. Nú fimm árum síðar er hlutabréfaverð Icelandair rétt undir 1,0 krónu útboðsgenginu. Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Fram kemur í frétt á vb.is að töluvert flökt hefur verið á gengi Icelandair síðustu ár eða allt síðan hlutfjárútboðið fór fram haustið 2020. Hæst hefur gengi félagsins farið í 2,29 krónur en það var 16. febrúar 2022 og 18. júlí 2023. Lægst hefur gengið farið í 0,84 krónur en það var 12. júlí 2024. Vikurnar fyrir hálfsársuppgjör Icelandair núna í júlí hækkaði hlutabréfagengi félagsins töluvert. Þann 23. júní síðastliðinn stóð gengið í 1,01 en tæpum mánuði seinna var það komið í 1,23 krónur. Þetta er tæplega 22% hækkun. Daginn eftir uppgjörið féll geangið í 1,11. Hagnaður félagsins á öðrum ársfjórðungi nam 12,9 milljónum dollara eða 1,65 milljörðum króna en niðurstaðan var samt sem áður undir spám greingaraðila.

Við endurskipulagningu félagsins í kjölfar Covid gerði Icelandair nýja kjarasamninga við flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja. Samkvæmt greiningu Akks í júní síðastliðnum leiddu þessir samningar til 10 til 25% aukinnar framleiðni, einkum vegna meiri sveigjanleika og betri nýtingar mannafla.

Samningar við flugmenn og flugfreyjur renna út eftir tæpa viku eða 30. september og samningar við flugvirkja losna 31. desember næstkomandi.