Icelandair hefur flug milli Reykjavíkur og Hafnar

Icelandair hefur flug milli Reykjavíkur og Hafnar

Icelandair hóf í dag áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði og verður flogið 5 sinnum í viku á Dash 200 vél félagsins sem tekur 37 farþega.

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Icelandair hóf í dag áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði og var fluginu fagnað á Hornafjarðarflugvelli. Flogið verður fimm sinnum í viku á 37 sæta flugvélum af tegundinni DHC-8-200. Höfn er fjórði áfangastaður Icelandair innanlands en fyrir flýgur félagið til Akureyrar, Ísafjarðar og Egilsstaða.

„Það er mjög ánægjulegt að bæta Höfn við leiðakerfi okkar innanlands, segir Bogi Nils Bogasin forstjóri Icelandair. Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Suðausturlandi en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að fá þennan vinsæla áfangastað ferðamanna inn í alþjóðlegt sölu- og dreifikerfi okkar og gera hann aðgengilegan viðskiptavinum í Evrópu og Norður-Ameríku. Jafnframt munu farþegar til og frá Höfn nú geta nýtt sér öfluga þjónustu Icelandair, þar með talið stafræna þjónustu og vildarklúbb.“