Fjórir nýir áfangastaðir Icelandair í vetur

Fjórir nýir áfangastaðir Icelandair í vetur

Malaga, Istanbúl, Miami og Edinborg eru allt nýir áfangastaðir Icelandair í vetur. Ætlunin er að bæta nýtingu yfir veturinn og minnka árstíðarsveiflu.

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

"Það er stefna okkar að vaxa utan háannatíma sumarsins og í ár bætum við fjórum nýjum alþjóðlegum áfangastöðum við yfir vetrartímann", segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Félagið hefur nýlega byrjað að fljúga til Malaga á Spáni og Istanbúl í Tyrklandi og hinir tveir nýju áfangastaðirnir sem munu bætast við eru Miami í Bandaríkjunum og Edinborg í Skotlandi. Bogi Nils segir að nýjar og hagkvæmari flugvélar í flotanum opni tækifæri fyrir stærri vetraráætlun. "Þannig getum við nýtt innviði okkar betur yfir veturinn og á sama tíma stuðlað að minni árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu."